25maí

Afmælisstelpa

Þá er ég orðin árinu eldri, átti afmæli í gær og vil ég þakka fyrir allar kveðjurnar. Fjölskyldan mín og Samma komu í kökur í gær og svo áttum við fjölskyldan bara rólegan dag.

Við ákváðum að ná í barbie húsið mitt inní geymslu í gær því Eva Natalía leikur sér svo mikið í barbie og var hún rosalega ánægð með það. Svo fann ég líka litla pandabirni sem ég lék mér líka með þegar ég var lítil og var Eva mín líka rosa ánægð með það. Hún lék sér í barbie húsinu og með pandabirnina, barbie dúkkurnar og polly pocket dúkkurnar sínar frá kl. 17.30-20.30 og vildi varla stoppa til að fá sér að borða. Ég hef bara ekki kynnst svona miklum dundara. Hún getur dundað sér allan daginn með þetta dót og var ekki sátt að þurfa að fara í leikskólann í morgun því hún vildi leika sér í húsinuSmile

Tanja Lind mín er komin með tönnslu númer 2 og það er ekki að gera góða hluti, hún bítur frekar fast. Er byrjuð að gefa henni smá graut og held ég auki það eitthvað fyrst hún er farin að bíta. Svo er hún orðin frekar dugleg við að sitja skottan og veltir hún sér frá baki yfir á maga, bara dugleg
Smile Við ætlum að hætta í ungbarnasundinu um mánaðarmótin og ætla ég þá að byrja að fara með hana bara sjálf. Hún hefur 2x farið í innisundlaugar fyrir utan ungbarnasundið og líkar vel.
25. maí 2009 klukkan 13:22
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
22maí

Tanja Lind farin að sitja

Við fjölskyldan fórum í sumarbústað eina nótt um síðustu helgi með Áslaugu og co, mömmu og pabba. Æði að komast aðeins í sveitina. Og Tanja Lind byrjaði að sitja í bústaðnum. Ákvað að prófa að láta hana sitja og hún bara gat það alveg, en auðvitað þarf að hafa eitthvað í kringum hana.


Svo dugleg og aðeins 5 mánaðaSmile Hún varð 5 mánaða á föstudaginn og byrjaði að sitja sama dag. Tíminn er eiginlega aðeins of fljótur að líða.

Annars eru allir sprækir á heimilinu. Ég er búin með skólann og komin í "fæðingarorlof", er bara í skúringarvinnunni minni en er bara að dúlla mér á daginn með Tönju. Ég sæki líka Evu Natalíu snemma í leikskólann einhverja daga og leyfi henni að eiga mömmudag inná milli. Svo fer hún í frí í júlí og byrjar kannski ekki aftur í leikskólanum.. fer eftir því hvort við fáum inní skólann eða ekki í DK og aðeins einn mánuður í svar ca.

Eva Natalía mín gæti hafa verið uppi þegar krakkar léku sér með bein eða einhverja steina. Hún getur dundað sér með hvað sem er og fer í hlutverkaleik með hvað sem er. Hún t.d. fer stundum í hlutverkaleik með litina sína eða húfuna sína (ef hún er t.d. með 2 dúska), algjör dundari. Svo pælir hún mikið í því hvaða stafir eru í orðunum sem hún er að segja. Hún er svo rosalega mikið að þroskast þessa dagana, gullkornin sem koma stundum uppúr henni eru stórkostleg.


Jæja farin að knúsa Tönju Lind.

P.s. setti inn maí myndir
22. maí 2009 klukkan 11:03
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
01maí

Fyrsta...

Fyrsta tönnin er mætt á svæðið hjá Tönju Lind og fannst hún í afmæli Oddnýjar og Þuríðar í dag.. Sammi fann hana en ég var að vonast til þess að mamma myndi finna hana hehe, því þá hefði hún "þurft" að gefa henni peningSmile En í staðinn fær hún hann frá okkur.
01. maí 2009 klukkan 18:12
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan