Tanja Lind er búin að vera veik síðan á laugardaginn. Fékk 39 stiga hita í fyrradag og var mjög veik. En ég held hún sé að hressast og vonandi verður hún hitalaus í dag. Ekki er þetta alveg besti tíminn til að vera lasinn, en hvenær er besti timinn.
Skólinn er alveg að verða búinn, 12 dagar eftir. Hef nú ekki getað lært mikið með skottuna veika en reyni þegar hún sefur. Svo er Eva Natalía í fríi 30.apríl-4.maí, þá er ekki mikið hægt að læra..
Rosalega er ég farin að hlakka til sumarsins. Ég verð i fríi með yngri skottuna og svo með þær báðar í júlí. Við ætlum að ferðast um landið okkar í sumar, fara hringinn í kringum landið og fullt af útilegum vonandi. Styttist líka óðum í svar frá skólanum, 2 mánuðir í mesta lagi eftir. Ein úti er alltaf að leita að íbúð fyrir okkur og erum við held ég búin að finna eina, sem er einhverjum 3km frá skólanum.
Ætla að halda áfram að lesa á meðan skottan sefur...
29. apríl 2009 klukkan 11:31
Oddný Hinriksdóttir Engin athugasemd
Tanja Lind er búin að fara í 3 tíma í ungbarnasundinu og er svo mikið að fíla þetta. Búin að fara nokkrum sinnum í kaf. Eva Natalía og Sammi komu með okkur á fimmtudaginn og koma aftur með á mánudaginn. Ég hélt oft að Eva Natalía myndi detta útí því hún var alltaf á brúninni á lauginni að horfa en það kom ekki fyrir. Sammi tók fullt af myndum og ég set þær inn við tækifæri.. hef ekki alveg tíma núna..
Er mikið að læra þessa dagana.. er orðin frekar stressuð fyrir lokaskilunum sem eru eftir mánuð.. úfff púff!! En ég vona að ég hafi það samt af. Er að rembast eitthvað við þetta í páskafríinu en reyni líka að gera eitthvað með eldri skottunni inná milli. Ég fór t.d. með hana út að hjóla í dag og fannst það rosa gaman. Ætlum aftur á morgun. Hún er búin að biða í allan vetur eftir því að fá að hjóla
Ohh hlakka til að fá páskaeggið mitt. Sammi mun fela það fyrir mig og Evu Natalíu og gerum við það sama fyrir hann.. hefð á þessu heimili.
10. apríl 2009 klukkan 21:39
Oddný Hinriksdóttir Engin athugasemd
Erum að byrja í ungbarnasundi á morgun með Tönju Lind Fer með hana til Snorra í Mosó, vorum þar líka með Evu Natalíu og okkur fannst það æði. Ef Tanja Lind er að fíla þetta jafn vel og systir hennar þá verðum við örugglega í 3 mánuði með hana, eða þangað til Eva Natalía er komin í frí í leikskólanum (s.s. í júlí). Ég mun yfirleitt fara ein með skottuna því að Sammi þarf að vinna.. kannski getur hann samt kíkt á hana eitthvað.
Eva Natalía mín er bara snillingur. Hún er farin að koma æ oftar uppí rúm til okkar á nóttunni.. og ég er alltaf að segja við hana að hún eigi að vera dugleg að sofa í sínu rúmi á nóttunni og er hún líka mjög stolt þegar hún vaknar í sínu rúmi. Í gær þá kom hún uppí til okkar um nóttina og Sammi sagði við hana daginn eftir að hún ætti bara að vera í sínu rúmi, en þá sagði hún "Mig langar ekki að koma uppí rúm til ykkar á nóttunni, fæturnir mínir labba bara inn til ykkar" Og við auðvitað gátum ekki annað en hlegið að henni. Það sem krökkum dettur í hug.
Ætli sumarið sé komið núna? Er búin að bíða eftir því lengi.. er alveg komin með leið á þessum snjó.. Ohhh væri líka til í að fara til sólarlanda í sumar, en held það verði að bíða betri tíma. Það er líka ógeðslega dýrt að fara til sólarlanda núna með fjölskylduna, 300þús eða meira fyrir 2 vikur.. úfffffff
01. apríl 2009 klukkan 17:03
Oddný Hinriksdóttir 2 athugasemdir