Eva Natalía er búin að fara í 3ja og hálfs árs skoðun og gekk hún rosalega vel, alveg rúllaði þessu upp eins og hjúkkan sagði það Var pínu feimin fyrst en svo var þetta allt í lagi. Hún er í meðalhæð en undir meðaltalinu í þyngd. Hjúkkan sagði að það væri ok ef hún væri að borða flestan mat, enda eru fleiri börn sem eru of þykk en of grönn... Enda var ég mjög mjó þegar ég var lítil. T.d. Tanja Lind er 5,5kg í 3 mánaða skoðuninni en ég var 5,7kg í 5 mán skoðuninni (samt var ég fædd um 3,5kg).. mjög nett. Svo fórum við líka í foreldraviðtal í leikskólanum og svo fengum við að sjá hvernig hún stendur sig í þroskanum, þar sem krakkarnir fara í þroskapróf. Eva Natalía mín er í flestu í 4-5 ára hópnum Bara dugleg.
Ritgerðin gengur allt í lagi.. er næstum hálfnuð, GÆS (get, ætla, skal).
Fór með múttu á konukvöld létt bylgjunnar í vikunni og skemmtum við okkur mjög vel saman. Svo erum mamma og pabbi að koma í læri til okkar í kvöld.
Bíðum spennt eftir svari frá DK. Vonandi verðum við ekki fyrir vonbrigðum og komumst ekki inn. En við erum já farin að bíða þó svo að við fáum svar frá skólanum í lok júní í síðasta lagi.. úffff löng bið.
En jæja Tanja Lind er að kalla á mjólkurbúið sitt.
28. mars 2009 klukkan 16:27
Oddný Hinriksdóttir 2 athugasemdir
Oddný Erla (alveg að verða 5 ára) systurdóttir mín var hjá okkur alla helgina og var ég því 3ja barna móðir alla helgina. Það gekk bara mjög vel Eva Natalía mín og Oddný Erla eru rosalega góðar vinkonur sem geta rifist einstaka sinnum, en um helgina voru þær súper góðar, bestur vinir. Ætluðu að fara rífast einu sinni en það varð svo ekkert úr því. Við gerðum mikið um helgina. Fórum með Oddnýju Erlu á sundnámskeiðið hennar, ballettími hjá minni skonsu, sunnudagaskólinn, partý, perlað og leikið. Hlakka til næst þegar Oddný fær að vera hjá okkur.
Eva Natalía er að hætta í ballettímunum.. Hún er ekki alveg að fíla þetta lengur og auðvitað leyfi ég henni að hætta bara, ætla ekki að pína hana áfram. Æjj ég skil hana reyndar alveg.. kellan sem sér um þetta er næstum með prikið á litlu 3 ára skottunum. Ok mér finnst allt í lagi að vera strangur en við mæðgur fengum alveg nóg síðast.. Líka dáldið leiðinlegt þegar maður sér "þjálfara" sem eiga sín uppáhald, ok að eiga uppáhald, en ekki þannig að það sé hunsað hina.. Ég vil samt taka það fram að þetta var hennar ákvörðun, ég og Sammi töluðum alltaf vel um balletinn..
Tanja Lind var í 3 mánaða skoðun í gær, já 3 MÁNAÐA SKOTTA.. Úff hvað tíminn líður.. Og fékk hún sprautu. Það er ekki að spyrja að því hvað hún var góð, grét næstum ekkert þegar hún var sprautuð. Hún er orðin 5,5 kg og 59,5cm. Var að athuga hvað Eva Natalía var 3 mánaða og hún var 5,3kg og 60cm.. svo eins systurnar
Talandi um tímann.. ég fer að halda að ég útskrifist ekki í vor.. tíminn líður OF hratt, dagarnir eru búnir áður en ég veit af. Ég er að reyna að njóta þess að vera í fæðingarorlofi og skrifa ritgerðina mína og það gengur svo hægt.. Ætla samt að reyna að klára hana.. Hef 2 mánuði. Er reyndar líka í einu námskeiði með ritgerðinni og þarf að mæta 3ju hverja viku í skólann og gera hópverkefni. GÆS=get, ætla, skal
17. mars 2009 klukkan 22:14
Oddný Hinriksdóttir 3 athugasemdir
Loksins er ég komin með öll gögn til að geta sent til Danmerkur Þannig að allt fer í póstinn á eftir. Þetta þarf ekki að vera komið út fyrr en 1.apríl en ég held ég muni gleyma þessu ef ég sendi þetta ekki sem fyrst..
Ég er á fullu í lokaritgerðinni minni þessa dagana og það gengur hægt, en gengur. Fór í TOEFL prófið í síðustu viku og það var frekar erfitt að einbeita sér með 20 manns í kringum sig og allir á sitthvorum staðnum í prófinu.. og mér fannst þetta dáldið erfitt, en það kemur bara í ljós hvernig þetta kemur út allt saman.
Tanja Lind mín er farin að grípa smá dótið sitt þegar hún liggur á leikteppinu og dótið er fyrir framan hana. Svo dugleg. Gerði það fyrst í gær og svo aftur í dag Svo gaman að sjá þegar börnin eru að læra eitthvað nýtt.
Fengum bréf í vikunni um að Eva Natalía eigi að koma í 3ja og hálfs árs skoðun á næstunni (vá hún er orðin 3ja og hálfs) og hún er ekkert smá spennt fyrir þessari skoðun. Veit að hún á að teikna og sýna hvað í henni býr.
Við verðum með partý í kvöld, eins og öll föstudagskvöld. Evu Natalíu finnst það rosa gaman. Fáum okkur snakk og nammi eða ávexti og höfum það kósý uppí sófa og horfum á Idolið
06. mars 2009 klukkan 13:30
Oddný Hinriksdóttir 1 athugasemd