Við fjölskyldan höfum haft það svo gott um jólin. Aðfangadagur var svo kósý, vorum bara 4 saman sem er algjört æði Eva Natalía var sko alveg að fíla það að fá að taka upp alla pakkana sem hún fékk og litla systir.. vildi reyndar líka taka upp þessa fáu pakka sem við fengum en fékk að hjálpa til við það. Svo hef ég ekki borðað neitt hangikjöt þessi jól (fékk bara smá smakk af hamborgarahryggnum) þar sem reykt kjöt getur farið svo illa í svona lítil kríli sem eru á brjósti. En ég græt það ekki að fá ekki hangikjöt, finnst það reyndar mjög gott. Vil frekar eiga hressa litla skottu.
Ég var að setja inn fullt af myndum á barnalandið, endilega kíkið á það.
mynd ad skottunum
Sammi ætlar að fara á eftir að kaupa smá flugelda, Eva Natalía er farin að hlakka svo til að sjá alla flugeldana á morgun, verður svo gaman.
Þegar ég lít yfir árið þá hefur þetta verið mjög viðburðarríkt ár hjá okkur, við giftum okkur og eignuðumst yndislega dóttur. Við fórum til Spánar með fjölskyldunni, við Sammi fórum bara 2 til New York og DK (semi brúðkaupsferð) sem var algjört æði.. og margt margt fleira gerðist hjá okkur á árinu.
En litla skottan er að kalla á mjólkurbúið.
Gleðilegt nýtt ár
30. desember 2008 klukkan 16:31
Oddný Hinriksdóttir 2 athugasemdir
Ohh ég er svo rík (peningar hvað?!). Á 2 yndislegar stelpur og eiginmann sem ég elska, gæti lífið verið betra?
Litla daman okkar er alveg yndisleg, sefur bara og drekkur. Eva Natalía er líka svo sátt við að vera stóra systir. Vill helst kyssa hana allan daginn og knúsa.. bara pínu abbó fílíngur útí okkur foreldrana, en það lagast.
Ég fékk í skóinn í morgun, fékk silfursafnið með Páli Óskari, ég var frekar sátt við það.
En jæja hef ekki tíma til að skrifa meira núna nema Gleðileg jól kæru vinir Hafið það rosa gott um jólin
24. desember 2008 klukkan 13:54
Oddný Hinriksdóttir 2 athugasemdir
...eins og þið kannski vitið. Á mánudaginn fór ég til ljósunnar í skoðun, átti að fara á þriðjudeginum. Hún ætlaði að hreyfa við belgnum og athuga útvíkkun en þá komst hún að því að lillan var sitjandi. Við brunuðum þá uppá fæðingardeild þar sem það átti að reyna vendingu (reyna að snúa barninu) en það var ekki hægt þar sem ég var með reglulega verki. Þá var ég spurð hvort ég vildi sitjandi fæðingu eða keisara og ég bað pent um keisara. Þar sem verkirnir voru farnir að vera harðir og 2 mín á milli (kl 20.30) þá var ákveðið að kalla út lið og ég í keisara. Lillan kom svo kl. 22.56 og var 13 merkur og 50,5cm (Eva Natalía var 13 merkur og 50cm) og er yndislegust Við komum sem sagt heim áðan og það er svo gott að vera komin heim. Það vill svo skemmtilega til að daman kom 15.des og það giskaði enginn á þann dag í keppninni frægu
Mynd af snúllunni okkar
Fleiri myndir á barnalandi.
P.s. Þar sem ég var í keisara og þarf að hvíla mig mjög mikið þá þætti mér vænt um að fá ekki heimsóknir fyrr en fyrsta lagi á sunnudaginn, vona að allir séu sáttir við það
17. desember 2008 klukkan 22:36
Oddný Hinriksdóttir 14 athugasemdir
Þó að ég eigi nú bara (ekkert bara samt) hana Evu Natalíu mína þá er ég samt að upplifa mína lengstu meðgöngu. Er komin 39 vikur og er löngu byrjuð að bíða eftir snúllunni. Ég gekk bara 38 vikur og 3 daga þanng að ég byrjaði að bíða fyrir 4 dögum. Vonandi kemur hún bara á næstu dögum, langar að hafa hana líka hjá okkur á jólunum.
Annars er ég búin með 2 próf og ætla bara í 1 í viðbót (sem er á morgun) og svo á ég að skila ritgerð og 2 úrdráttum 19.des. Ég tek því 2 próf í janúar. Ég bara er ekki að meika meira núna. Er svo þreytt eftir prófin og bakið alveg að drepa mig, stólarnir í skólanum eru ekki uppá marga fiska. En sem betur fer var ég á góðum stól í gær.
Annars líður mér bara vel. Er orðin pínu þreytt þannig að ég væri alveg til í að hvíla mig smá fyrir fæðinguna.
Eva Natalía mín er misjöfn þessa dagana.. Finnur alveg að breytingarnar hjá fjölskyldunni eru að skella á. Hún grætur yfir minnstu hlutunum og er að frekjast við okkur. En það lagast vonandi þegar lillan kemur. Við erum að fara að skreyta piparkökur í leikskólanum á laugardaginn, hlakkar rosa mikið til. Svo kemur fyrsti jólasveinninn í kvöld. Eva Natalía er frekar spennt að setja skóinn í gluggann og hún vill sko að jólasveinninn gefi henni súkkulaði og pez (þá bara Hello Kitty). Hún veit líka að ef hún er óþekk þá á jólasveinninn fullan poka af kartöflum sem hann gefur henni ef hún er ekki góð.
Svo keyrði ég á í gær Var eitthvað utanvið mig eftir próf (kannski þess vegna sem óléttar konur á síðustu metrunum eiga helst ekki að keyra).. Var að keyra á Miklubrautinni (mjög mikið myrkur og mikil rigning og rok) og svo beygir bíllinn fyrir framan mig og viti menn bíllinn þar á undan var stop!!! Eins og fleiri bílar þar sem það var rautt ljós.. En neinei mín sá ekki rauða ljósið Þannig að ég bombaði á bílinn.. sem var reyndar ekki mjög harkalega þar sem það sást ekkert á bílnum Og mér varð ekki meint af.. eða ég held ekki. Lillan mín er alla vega í fullu fjöri. En eitt spaugilegt við þetta er að ég þekki strákinn sem ég keyrði á.. hann sagði nú við mig að ég ætti ekki að hafa áhyggjur og ekki að fara eiga út af þessu, hann sagðist líka vera á svo mikilli druslu að þó að hann hefði fengið eina rispu þá væri það ok.. Hef reyndar ekki ennþá kíkt á okkar bíl, hvort það sést eitthvað á honum.. var í svo miklu sjokki í gær að ég bara gleymdi því...
Ekki meira í bili.. Farin að læra fyrir síðasta prófið á þessu ári
11. desember 2008 klukkan 08:50
Oddný Hinriksdóttir 15 athugasemdir
Jeijjjj ég er búin að ná 38 vikunum, 2-4 vikur eftir Ég er reyndar orðin frekar abbó.. Áslaug systir átti 25.nóv og Áslaug frænka sama dag, svo var Harpa vinkona að eiga 2.des.. Þannig að núna eru allar búnar sem áttu að eiga í nóv-des sem ég þekki! En ef ég verð eins og með Evu Natalíu þá á ég að eiga á sunnudaginn Býst samt ekki alveg við því.. Væri líka gaman að klára einhver próf áður en skottan mín lætur sjá sig. Á meðan ég/við erum að bíða þá getum við bara knúsað litla frænda þangað til, verst hvað ég get farið lítið í heimsókn þessa dagana þar sem lærdómurinn tekur allan minn tíma.
Talandi um skólann. Ég get varla andað þessa dagana, svo mikið að læra.. Prófin hjá mér eru sem sagt 9, 10, 12 og 15. Svo Eigum við að skila verkefni 19.des (sem ég gæti hugsanlega fengið að skila seinna) Kemur allt í ljós hvort ég geti skilað á réttum tíma... hefði hugsanlega getað það ef kennarinn hefði sett það inn á réttum tíma, ætlaði að setja það inn á föstudaginn en setti það inn í gær!!! Arg!!
Annars er ég mjög hress ennþá. Er bara þreytt í mjöðminni en ekkert alvarlegra en það. Læri heima alla daga sem er rosalegur munur frá skólanum þar sem ég get valið hvort ég sit, ligg eða hvað hérna heima. Svo hef ég fengið leyfi hjá námsráðgjöf til að vera í sérúrræðastofu í prófunum, s.s. ég get staðið upp eins oft og ég vil og sá tími sem ég er frammi er ekki dreginn af próftímanum.. Kannski þarf ég ekkert að standa upp en gott að hafa þetta.
Jæja ætla að byrja að læra..Var bara að koma heim úr aðventukaffi í leikskólanum og svo var farið með bílinn í skoðun og auðvitað fékk ég miða sem stóð á 10!! Var hrædd um að ég þyrfti endurskoðun hehe.
04. desember 2008 klukkan 10:15
Oddný Hinriksdóttir 4 athugasemdir