12júní

Brúðkaupið!

Ég vil bara láta ykkur vita af því, ef einhver ætlar að gera eitthvað í brúðkaupinu okkar þá verðiði að tala við Ásu veislustjóra í meili asa@heimsferdir.is Brosandi sem fyrst. Annars er ég líka með símann hjá henni.
12. júní 2008 klukkan 10:58
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
10júní

Eva Natalía að verða stóra systir:)

Já við eigum sem sagt von á barni, jólabarniBrosandi Mikil tilhlökkun er á heimilinu, sérstaklega hjá Evu Natalíu minni. Hún er alltaf að spyrja hvort barnið sé með tennur, geti borðað, sé með munn og þ.h. Hún er líka alltaf að knúsa og kyssa magann á mérBrosandi Hún talar líka mikið við bumbuna og les fyrir hana. Svo er þetta litla systir, segir hún.. Gaman að sjá það svo hvort það reynist rétt.

Var í fyrstu mæðraskoðuninni áðan og allt leit vel út. Eins fór ég í sónar í síðustu viku og þar var allt rosa flott. Gaman að sjá litla krílið sitt sprikla mikið, þó að það sé nú pínu lítið eða um 5,5 cm. Núna er ég komin 12vikur og 5 daga og er komin með smá bumbu. Reyndar er ég líka smá þanin þannig að hún er ennþá stærri kannski en hún ætti að vera.

Jæja læt fylgja með eina bumbumyndBrosandi
 




Mesta krútt í heimiGlottandi

P.s. látið mig vita ef myndin kemur ekki...
10. júní 2008 klukkan 15:56
Oddný Hinriksdóttir
12 athugasemdir
07júní

Ætlaði ekki að blogga fyrr en á mánudag eða þriðjudag...

... En hef bara ekkert að gera. Sammi er s.s. ekki heima þar sem það er verið að steggja hannBrosandi Heyrði aðeins í honum áðan og hann er að skemmta sér svo vel, hann sem var farið að kvíða svo fyrir því að vera steggjaður hehe. En ég og Eva Natalía höfum þá bara verið eitthvað að hanga í dag. Fórum með mömmu til Ásu (sem verður veistustjórinn okkar í brúðkaupinu) og svo vorum við í mat hjá mö og pa. Ég ákvað svo að halda smá "partý" með Evu Natalíu minni og henni fannst það sko ekki leiðinlegt. Fara í búðina og velja fullt af nammi mmmm.

Vá ég er eiginlega bara grenjandi hérna heima... Ástæðan er reyndar góð. Ég er að hlusta á lögin sem verða sungin af Hönnu Þóru í kirkjunni. Ómygod.. Ég elska þessi lög.. og er líka hágrátandiGrátaGlottandi Sem er líka bara gaman.
2 vikur í brúðkaupið, sjæse... Komin mikil tilhlökkun en samt líka smá stress fyrir því að vera miðpunktur dagsins. Erum að klára að gera síðustu hlutina og það er alveg hellingur.. Þó að þetta teljast nú vera smáhlutir. Vá hlakkkkkkkaaaa svo til!!!! Bráðum verð ég FRÚ ODDNÝ!! Fjúffff

En vá verð smá að monta mig af prinsessunni minni. Hún er svo dugleg. Allt í einu er hún farin að segja okkur hvor höndin er hægri og vinstri og það sama með fæturnar og hún ruglast aldrei. Svo er litla skottan farin að skrifaBrosandi Reyndar bara 3 stafi en kommon hún er líka ekki orðin 3ja ára. Hún kann að skrifa E, T og O. Hún vill alltaf vera að læra eitthvað nýtt og spyr út í alla stafi, hver á þá og þess háttar. Svo segist hún þurfa að æfa sig að skrifa þegar hún kemur heim af leikskólanumBrosandi Bara dugleg litla prinsessan.

En jæja ætla að fara sofa.. Alltof þreytt. Góða nótt!

P.s. Búin að fá allar einkunnir og fékk mjög fínar einkunnir.
07. júní 2008 klukkan 23:45
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
01júní

Áfram Ísland!

Fyrst vil ég óska Íslandi til hamingju með sigurinn á Svíum og vera komin á ÓL 2008 Brosandi Mjög gaman að horfa á leikinn.

Annars er Eva Natalía mín lasin enn einu sinni. Held hún sé búin að vera veik í annarri hverri viku síðan 13.apríl!! Rosalega leiðinlegt. Var að vonast til þess að hún yrði hress í sumar þar sem ég er að vinna.. En vonandi verður hún bara hress eftir þessa pest.

Undirbúningur fyrir brúðkaupið gengur bara vel.. held égBrosandi Einungis 20 dagar í brúðkaupið, sem er rosalega stutt. Margir búnir að boða komu sína og svo eru líka nokkrir sem eiga eftir að láta vita.

Rosalega lítið annars í fréttum.. Bara mikið að læra í vinnunni og mikið að gera í undirbúningi!

Læt heyra í mér sem fyrst aftur...
01. júní 2008 klukkan 21:58
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
24maí

Afmælisbarn dagsins:)

Ég á afmæli í dag og er orðin 25 áraBrosandi 
Til hamingju ég.
Hlakka til að sjá alla í kvöld..
24. maí 2008 klukkan 10:01
Oddný Hinriksdóttir
5 athugasemdir
20maí

Jájá blogg!

Farið að reka á eftir manni að bloggaBrosandi *hóst Helga hóst*

Var gæsuð á laugardaginn, takk æðislega stelpur fyrir frábæran dagBrosandi Stelpurnar byrjuðu á því að ná í mig á laugardaginn kl 9 um morguninn, allar svartklæddar með trefil fyrir munninum og Eva Natalía skíthrædd hehe. Svo var farið í Bakarameistarann og þaðan í magadans. Ég fékk reyndar alltaf þrautir sem ég átti helst að ráða úr, gat það svona næstum því alltaf. Það var rosa gaman í magadansinum, vorum misgóðarBrosandi Þaðan fór ég í nudd og svo í sund í laugardalnum. Þegar við vorum í sundi þá létu stelpurnar sundlaugarvörðinn kalla mig upp og ég þurfti að fara í turninn til hans og ná í næstu þraut.. Ég vissi ekki af þessu en fannst stelpurnar vera óþarflega mikið að horfa uppí turninn, en pældi svo ekkert í því. Eftir sundið var farið á Salatbar Eika, fékk kort að gjöf frá þeim 2 fyrir 1 á Salatbarinn. Svo ákváðu stelpurnar að fara með mig í ísbúðina og töluðu við eigandann um að ég fengi að fara inn fyrir borðið og gera minn eigin is.. og ég fékk það.. Það tókst mjög vel þegar ég fattaði hvernig átti að geraþað (ekki sömu vélar og þegar ég var að vinna við þetta) ehhe. Eftir það var farið á einn stað, veit ekki hvort ég má segja frá því. Svo fórum við í keilu og ég var rosa góð.. huhummm! En samt var ég ekki eins léleg og sumir, nefni engin nöfnKoss Eftir það var farið uppí bústað til Siggu og var grillað og spilað. Rosa skemmtilegur dagur, takk takk takk enn og aftur.

Annars er ég byrjuð að vinna og líkar mjög vel, eins og alltaf.

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. Læt heyra í mér fljótlega..
20. maí 2008 klukkan 21:27
Oddný Hinriksdóttir
6 athugasemdir
15maí

Búin í prófum!!!!!!!!!

Loksins er ég búin í prófum! Byrjaði 23.apríl og var að klára í gær, tók næstum því mánuð.. Núna finnst mér dáldið skrítið að vera ekki að læra.. En það vonandi venst þar sem það verður brjálað að gera næsta mánuðinn í undirbúningi. 

Núna fer brúðkaupsundirbúningurinn á fullt. Vorum að panta gestabókina í gær og kertið sem mun standa við hliðiná henni. Um helgina förum við svo að panta brúðarvöndinn, skreytingar á brúðarbílnum, skreytingar í sal, giftingarhringana.. Mikið að gera um helginaBrosandi og verður svo gaman.

Eva Natalía mín er búin að vera lasin meira og minna síðan 13.apríl og er litla prinsessan mín komin með lungnabólgu.. í annað skiptið á einu og hálfu ári.. Enda sagði læknirinn að hún kæmi í bólusetningu þegar hún væri orðin hress. En hún er komin á pensilín og púst sem hún verður á í minnsta kosti 2 vikur, verður að losa sig við þennan óþverra.

Byrja að vinna á mánudaginn, sem verður skrítið, þar sem ég er auðvitað bara búin að liggja yfir bókunum síðustu mánuði. En það verður líka gaman.

Ætla að knúsa Samma og Evu Natalíu, þar sem ég hef ekki verið til tals (næstum því) í meira en mánuð!
15. maí 2008 klukkan 21:10
Oddný Hinriksdóttir
8 athugasemdir
02maí

Jæja.. loksins..

Loksins búin að setja inn apríl myndir. Helga vinkona var farin að kvartaBrosandi

Ég er búið með próf númer 2, erfiða prófið mitt sem ég er búin að kvíða fyrir mjög lengi, en það gekk bara ágætlega. Alla vega fegin að vera búin með það. Svo átti ég að fara í næsta próf á morgun, en ég er hætt við það.. Ætla að taka það bara í sumar. Vil ekki fara þar sem ég er ekki nógu vel undirbúin fyrir það. Þannig að næsta próf hjá mér er á þriðjudaginn.

Við erum að fara hitta Pálma prest á þriðjudaginn og nokkur önnur pör sem eru einnig að fara gifta sig í sumar. Hlakka bara til og ég held að brúðkaupið verði ennþá raunverulegra þá..Koss

Eitt fyndið í lokin. Eva Natalía var að skoða dýrabók áður en hún fór í Húsdýragarðinn með Samma. Hún skoðaði hesta, kýr, kindur, fugla, fíla og fleira. Ég sagði henni að hún fengi að sjá fíla þegar við förum til Spánar í sumar. Allt í lagi með það. Hún fór svo í Húsdýragarðinn með Samma. Þegar þau voru búin að skoða kýrnar þá spurði Eva Natalía "Hvar eru fílarnir? Eigum við ekki að skoða fílana?" Auðvitað hélt hún að það væru líka fílar í Húsdýragarðinum, Bara sætBrosandi

P.s. Þessi mynd verður bara að vera svona (efst á síðunni), kerfið er mjög leiðinlegt og ég er búin að prófa að setja hana inn 20x.. besta útkoman
02. maí 2008 klukkan 20:04
Oddný Hinriksdóttir
4 athugasemdir
25apríl

1/5

Fyrsta prófið búið af fimm, og gekk helmingurinn vel en hinn helmingurinn gekk ekki eins vel. Þetta próf sem ég er búin með er sem sagt skipt í 2 hluta, excel og svo spurningar. Excel gekk vel. Í hinum hlutanum voru 4 spurningar og giltu 25% hver. Við vorum í okkar eigin tölvum og máttum fara á netið og með öll gögn með okkur. Nema ein spurningin var ekki úr námsefninu, áttum bara að googla svarið.. Skrítið fyrirkomulag.. En ég get huggað mig við það að allir sem ég talaði við (og fleiri) voru ekki sáttir við þennan helming prófsins.
Næsta próf er á miðvikudaginn og það er erfiðasta prófið sem ég fer í.. þannig að ég er bara að læra!

Eva Natalía mín segir oft mjög sæta hluti við okkur. T.d. var hún að fara með Samma út í búð áðan og sagði við mig áður en hún fór "vertu svo duglega að læra mamma!" Ég alveg bráðnaði. Svo um daginn þegar ég var búin að sækja hana úr leikskólanum, þá sátum við í sófanum og vorum að knúsast. Allt í einu segir hún við mig "Rosalega er gott að sjá þig mamma!"Brosandi Hún er bara snillingur.

Við erum búin að senda út boðskotin í brúðkaupið og vonandi hafa öll komist til skila. Einnig erum við komin með veislustjóra. Ég held það séu bara einhverjir smáhlutir eftir.. jú og kjóllinn minnBrosandi Búnar að velja snið (ég og Elsa saumadaman mín).. hlakka svo til. Þarf reyndar að finna mér skó... Hmmmmm..

En jæja ætla í háttinn.. Sundnámskeið snemma í fyrramálið...
25. apríl 2008 klukkan 22:39
Oddný Hinriksdóttir
4 athugasemdir
17apríl

læra, læra, læra.

Komin heim frá London, eða já nokkrir dagar síðan. Við höfðum það mjög gott heima hjá Þórdísi vinkonu Áslaugar, takk fyrir okkur. Ég verslaði frekar mikið á Evu Natalíu og var hún líka mjög ánægð þegar ég sýndi henni allt sem ég keypti. Svo kom ég Samma smá á óvart þar sem ég keypti jakka, peysu, bol og sokka á hann. Hann bjóst ekki við því að ég myndi kaupa t.d. jakka á hann, sem btw passaði akkuratBrosandi 

Svo var ég búin að fá smá efnisbút hjá Elsu þar sem ég ætlaði að kíkja a brúðarskó úti (hafa þá í ca sama lit og kjóllinn), en neinei steingleymdi því.. Þannig að ég finn mér bara skó hérna heima, ekkert stress.

Brúðarkortin eru að verða tilbúin og vonandi get ég sent þau á mánudaginn í síðasta lagi.

Evu Natalíu finnst rosalega gaman á sundnámskeiðinu og er mjög dugleg miðað við hvað hún er lítil.

6 dagar í fyrsta prófið... og verð ég því að halda áfram að læra og hætta að hangsa á netinu..
17. apríl 2008 klukkan 10:35
Oddný Hinriksdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan