14júní

Lítið í fréttum....

Já það er lítið að frétta af mér. Ég er farin að vinna með mömmu og verð að vinna með henni út mánuðinn. Eva Natalía elskar það að leika við alla krakkana allan daginn. Um leið og við komum til mömmu þá byrjar hún að brosa. Það er eins gott að það verði þannig því að hún fer í pössun til mömmu í ágústBrosandi Svo verður hún líka að vera góð á laugardaginn þar sem við erum að fara í brúðkaup og mamma og pabbi passa á meðan.

Aðeins um Mallorca. Þegar ég hef farið til Costa Del Sol þá hef ég ekki séð pöddu eða flugu og það var það sem mér fannst svo gott að sjá þetta ekki. Ennnnnnn á Mallorca er allt morandi af óvinum mínum, KÖNGULÓM!!!!! Ojbarasta. Það voru köngulær alls staðar og köngulóarvefir alls staðar. Jakk.... Og svo voru alls konar flugur og pöddur þarna úti, sko fullt af þeim sem ég hef aldrei séð áður. Sko einn daginn útí sólbaði þá var ég að lesa. Ég hafði bókina nálægt höfðinu á mér þar sem ég var að skýla mér fyrir sólinni. Svo sé ég allt í einu glitta í eitthvað hjá bókinni (tek það fram að ég var búin að lesa í mesta lagi 4 blaðsíður) og viti menn það var köngulóarvefur, eða byrjunin á honum. Eftir þetta þá las ég ekki í sólbaði....

En jæja, verð að fara að elda, eða láta Samma gera þaðHissa
14. júní 2006 klukkan 22:57
Oddný Hinriksdóttir
4 athugasemdir
13júní

Restin....

...af myndunum úr myndatökunni komnar innBrosandi
13. júní 2006 klukkan 03:36
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
12júní

Myndir.....

Var að setja inn nokkrar myndir úr myndatökunni hjá BrosBörnumBrosandi Rosalega flottar myndir. Ég ætla að reyna að setja restina af myndunum inn á morgun, barnaland er eitthvað hægt eins og er.

Og svo eitt, Eva Natalía tók 4 skref í gærHissa Rosalega dugleg. Skvísan er eitthvað að drífa sig að gera hlutina. Bara gaman.
12. júní 2006 klukkan 03:50
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
10júní

Loksins, loksins:)

Loksins komnar inn nokkrar Mallorca myndir. NjótiðKoss Það eiga samt eftir að koma fullt af fleiri myndum.
10. júní 2006 klukkan 15:43
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
09júní

Komin heim á klakann.....

Rosalega er kalt á ÍslandiÖskrandi brrrrrr. Ég bara skalf þegar ég kom heim. Án gríns. En annars er búið að vera rosalega notalegt úti á Mallorca. Það var líka mjög mikill hiti. Maður lá bara í sólbaði þegar tími gafst til. Við þurftum náttla að sinna Evu Natalíu, sem var btw mjög góð í þessari ferð. Var reyndar komin með nett ógeð af kerrunni sinni, sólhattinum og sólarvörninni. Þannig að hún fær hvíld frá þessu öllu í mánuðBrosandi Þar sem við erum að fara aftur til Spánar eftir mánuð.
Ég get nú ekki sagt að ég hafi keypt mikið. Við fórum einn dag í Palma þegar það var skýjað. Fórum í Zöru og H&M og ég keypti smotterí. Það var rosalega mikið til af sumarfatnað, það er ástæðan fyrir því að við keyptum ekki mikið.
Það var skýjað í samtals 3 daga og einn daginn var bara íslenskt veður, rok og rigning. Eva Natalía þurfti meira að segja að vera með húfuHissa Aha já á Spána. Ég trúði því heldur ekki að það gæti verið svona kalt á Spáni.

En nóg um Mallorca í bili. Ég sé það þegar ég kem heim að það eru allir að koma með blogg á Bloggar.isHlæjandi Allir að herma eftir mér, reyndar hermdi ég eftir Gullýju og er stolt af þvíBrosandi  Mér finnst þetta bara miklu betra en blog.central.is....

En jæja þarf að fara að sinna dóttir og kærasta... SjáumstÞögull sem gröfin
09. júní 2006 klukkan 01:30
Oddný Hinriksdóttir
4 athugasemdir
27maí

Oggg....

Takk fyrir afmaeliskvedjurnar;)
27. maí 2006 klukkan 19:53
Oddný Hinriksdóttir
10 athugasemdir
27maí

Hilsen fra Mallorca:)

Vá hvad tad fer geggjad vedur herna a MallorcaBrosandi uffffff. Eg var svo gradug a solina i gaer ad eg brann sma a bakinuSkömmustulegur En tad er annars BARA buid ad vera sol. Tad var skýjad daginn adur en vid komum...

Eva Natalia er alveg ad fila tetta i botn. Farin ad segja EVA og JAEJAGlottandi Gedveikt dugleg.

Vildi bara svona adeins segja hae tar sem tad er internet a hótelinu. Pirrandi ad tad séu ekki íslenskir stafir....

En vid sjaumst bara. Vonandi verd eg brun og saet tegar eg kem heimGlottandi

Bae bae...Oddný og fjolskylda
27. maí 2006 klukkan 19:48
Oddný Hinriksdóttir
2 athugasemdir
24maí

Víííííí

Ég á afmæli í dagBrosandi Til hamingju ég. Kossar og knús til mínKoss

En svo er það bara Mallorca á morgunBrosandi Hlakka ekkert smá mikið til. Hrafnhildur og co eru farin, þannig að við hittumst bara á ströndinni. Hérna getiði fylgst með því hvernig veðrið verður hjá mér: http://english.wunderground.com/global/stations/08306.html 
Það er eins gott að það sé sól allan tímannSvalur

Til hamingju með daginn ElísabetBrosandi Við eigum sama afmælisdag og eru jafn gamlar.

Jæja þá skrifa ég ekkert meira hérna fyrr en ég kem heim frá MallorcaGlottandi Seeee yaaa
24. maí 2006 klukkan 14:08
Oddný Hinriksdóttir
11 athugasemdir
23maí

Nýjar.....

Nýjar myndirUllandi
23. maí 2006 klukkan 22:46
Oddný Hinriksdóttir
2 athugasemdir
23maí

Geitungar.....

Já ég heyrði það í gær að geitungarnir kæmu ekkert meira í sumarHlæjandi Mín ánægð. Það er af því að það er svo rosalega kalt úti núna. Ég vona að þið séuð jafn ánægð og ég. Losna við þessi kvikindi. Vonandi á þetta lika við um köngulærnar.

Fór í dag og keypti mér kjólKoss Rosa flottur. Ég er nebla að fara í 3 brúðkaup í sumar og á ekkert fínt til að vera í. Ég sá bara þennan kjól í glugganum á einhverri búð og mátaði og keypti. Þessi kjóll kom víst í morgun og var að klárastGlottandi  Held það hafi verið einn eftir......
Áslaug sys keypti sér líka alveg eins kjól. Hún er nebla að fara í 10 brúðkaup í sumar, ok ýki kannski smá en hún fer í rosalega mörg brúðkaup. En við verðum ekki í kjólnum á sama tíma. Erum svo oft eins og tvíburarSkömmustulegur

Sammi gaf mér afmælisgjöf áðan og audda Eva Natalía líka (þó að ég eigi afmæli á morgun). Ég fékk bol (ógeðslega flottan) og gítarnámskeið á DVDBrosandi Það ætti kannski að sparka í rassinn á mér að fara að æfa mig á gítarinn minn.
Takk ástin mín og Eva Natalía rúsínan mínBrosandi
23. maí 2006 klukkan 22:25
Oddný Hinriksdóttir
9 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan