Komin heim úr ćđislegri ferđ til DK
Var að setja inn 2 ný albúm, annað er frá ágúst og hitt er frá DK ferðinni okkar
Fórum í 5 daga til Kaupmannahafnar að skemmta okkur og versla smá. Fórum í Bakken sem er tívolí, dýragarðinn í Frederiksberg sem var æði og á ströndina og versluðum smá. Eva Natalía og Tanja Lind voru rosalega góðar allan tímann enda elskar Eva Natalía að vera í búðum og versla/skoða föt.. ekki langt að sækja það ehehe. Við vorum hjá yndislegu fólki á Volosvej á Amager og munum pottþétt vera þar aftur ef við förum aftur út.Er að byrja í skólanum í næstu viku og hann leggst bara vel í mig. Er að fara í master í heilsuhagfræði, fyrir þá sem ekki vita. Áslaug sys verður með Tönju Lind á meðan ég er í skólanum og ég tek Hinrik Örn á móti ef Áslaugu vantar pössun. Ég tek bara 2-3 fög í skólanum, get ekki verið í fleiri fögum þar sem ég verð heima með Tönju Lind. Verðum eitthvað að dúllast saman á milli þess sem ég læri og er í skólanum.
Tanja Lind mín skríður áfram á rassinum þessa dagana og það er ekkert smá sætt
Ef hún sér eitthvað sem hana langar í þá fer hún bara og nær í það. Hún er ekkert að gera sig líklega til að standa upp og finnst mér það bara fínt, eiga eina rólega stelpu. Svo er hún rosaleg mömmustelpa og það má helst enginn vera með hana nema ég...Eva Natalía er mjög ánægð á nýju deildinni á leikskólanum og á margar góðar vinkonur á deildinni og vini. Hún er alveg að verða 4 ára og er löngu farin að telja niður í það.
Mamma og pabbi eiga 37 ára brúðkaupsafmæli í dag, til lukku með daginn elskurnar.
Jæja farin að sofa...
26. ágúst 2009 klukkan 23:29
Oddný Hinriksdóttir
Oddný Hinriksdóttir