29september

.....

Ég var að setja september myndir inn.

Ég held ég sé nú bara hætt að blogga.. svo fáir sem kíkja hingað inn hvort eð er hehe..

Eitt í lokin, Eva Natalía mín átti afmæli 11. sept síðastliðinn og er orðin 4 ára skvísan mínWink Ég kom með þessa tilkynningu inná Facebook enda eru flestir komnir þangað inn.
29. september 2009 klukkan 21:18
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
07september

Nýjar myndir.

Var að setja inn myndir úr afmæli Evu Natalíu sem við héldum uppá 29.ágúst en hún á afmæli 11. sept Smile Njótið
07. september 2009 klukkan 09:55
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
26ágúst

Komin heim úr æðislegri ferð til DK

Var að setja inn 2 ný albúm, annað er frá ágúst og hitt er frá DK ferðinni okkarSmile Fórum í 5 daga til Kaupmannahafnar að skemmta okkur og versla smá. Fórum í Bakken sem er tívolí, dýragarðinn í Frederiksberg sem var æði og á ströndina og versluðum smá. Eva Natalía og Tanja Lind voru rosalega góðar allan tímann enda elskar Eva Natalía að vera í búðum og versla/skoða föt.. ekki langt að sækja það ehehe. Við vorum hjá yndislegu fólki á Volosvej á Amager og munum pottþétt vera þar aftur ef við förum aftur út.

Er að byrja í skólanum í næstu viku og hann leggst bara vel í mig. Er að fara í master í heilsuhagfræði, fyrir þá sem ekki vita. Áslaug sys verður með Tönju Lind á meðan ég er í skólanum og ég tek Hinrik Örn á móti ef Áslaugu vantar pössun. Ég tek bara 2-3 fög í skólanum, get ekki verið í fleiri fögum þar sem ég verð heima með Tönju Lind. Verðum eitthvað að dúllast saman á milli þess sem ég læri og er í skólanum.

Tanja Lind mín skríður áfram á rassinum þessa dagana og það er ekkert smá sættSmile Ef hún sér eitthvað sem hana langar í þá fer hún bara og nær í það. Hún er ekkert að gera sig líklega til að standa upp og finnst mér það bara fínt, eiga eina rólega stelpu. Svo er hún rosaleg mömmustelpa og það má helst enginn vera með hana nema ég...

Eva Natalía er mjög ánægð á nýju deildinni á leikskólanum og á margar góðar vinkonur á deildinni og vini. Hún er alveg að verða 4 ára og er löngu farin að telja niður í það.

Mamma og pabbi eiga 37 ára brúðkaupsafmæli í dag, til lukku með daginn elskurnar.

Jæja farin að sofa...
26. ágúst 2009 klukkan 23:29
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
17ágúst

Brosbörn

Setti inn myndir frá myndatökunni 10.ágústSmile Fórum með stelpurnar í Brosbörn. Það er ein mynd í hausnum á þessari síðu og restin er inná barnalandi. Njótið
17. ágúst 2009 klukkan 18:14
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
10ágúst

Blogg

Var að setja inn ágúst myndir á barnalandið og frá brúðkaupi Garðars og Söru á facebookSmile Set einhverjar af þeim líka á barnaland við tækifæri.

Annars giftu Garðar og Sara sig á laugardaginn og þetta var æðislegur dagur. Til hamingju aftur Garðar og Sara, þið voruð svooooo flott enda grét ég þegar Sara gekk inn kirkjugólfið.

Ég er ekki í bloggstuði núna, en mig langar að sýna ykkur 2 myndir.. þar sem ég er að bera saman litlu stelpurnar mínar. Eva Natalía og Tanja Lind eru jafn gamlar á báðum myndum. Á fyrri myndinni sést þegar Eva Natalía skríður um öll gólf

Og á þeirri seinni sést Tanja Lind sitja sem fastast...


Eva Natalía var farin að standa upp á þessum aldri og fór út um ALLT.. En Tanja Lind mín situr baraSmile Það er rosalega gaman að geta upplifað bæði rólegt barn og eitt sem fer út um allt.
10. ágúst 2009 klukkan 23:10
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
02ágúst

Hringferð

Var að setja inn nokkrar vel valdar myndir af hringferðinni okkar í kringum landið. Við fórum af stað á miðvikudaginn og gistum fyrstu nóttina í Hamragarði sem er við Seljalandsfoss. Skoðuðum hann svo auðvitað með tengdó. Næsti áfangastaður var Skógarfoss og við Eva Natalía löbbuðum uppá topp hjá fossinum (heilar 380 tröppur) og Eva Natalía blés ekki úr nös, enda hörkutól. Næst var farið og skoðað Dyrhólaey (reyndar fór Sammi bara þar út því veðrið var ekkert of gott). Skaftafell var næsti gististaður og það er mjög fallegt þar (eins og á öllum stöðum sem við fórum á eða gistum). Skoðuðum Jökulsárlónið. Mjög gaman að bera saman myndir af Evu Natalíu sem voru teknar fyrir 2 árum og svo núna.
Þessi tekin um verslunarmannahelgina árið 2007

Og þessi tekin um verslunarmannahelgina árið 2009


Því næst var ekið í átt að Atlavík sem varð næsti gististaður. Það var mikil rigning á leiðinni og því sáum við voðalega lítið af Austfjörðunum. Eftir Atlavík keyrðum við í Ásbyrgi og skoðuðum það og Öxarfjörðinn og enduðum svo á Mývatni og gistum þar. Okkur var frekar kalt þessa nóttina og Tanja Lind var orðin mjög kvefuð og svaf ekkert um nóttina þannig að við ákváðum að bruna heim í dag (ætluðum að vera fram á þriðjudag). En þetta var mjög skemmtileg ferð í alla staði þó svo að við höfum ekki fengið sólSmile

Tanja Lind mín er að fá sína 3. og 4. tönn. Búin að vera frekar pirruð uppá síðkastið enda skilur maður það, ekki gott að fá nýjar tennur. Annars er hún ekki eins fljót eins og Eva Natalía, eiginlega sem betur fer þar sem Eva Natalía var farin að standa upp á þessum aldri (7 mánaða) og labba með. Tanja Lind bara situr á gólfinu og reynir að mjaka sér áfram á rassinum og ef hún er á maganum þá bakkar hún bara. Ekkert að drífa sig skottan.
02. ágúst 2009 klukkan 22:18
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
24júlí

Nýjar myndir

Núna erum við komin með nýja myndavél og elskum því að taka myndirSmile Var að setja inn annað albúm
24. júlí 2009 klukkan 22:06
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd
22júlí

Myndir

Var að setja inn myndir og setti líka inn myndir um daginn og gleymdi að skrifa það hérna inn Smile

Við erum alveg að elska þetta veður sem hefur verið, enda er maður kominn með smá lit, Spánn hvað?! Langar nú samt til Spánar. Hefðum líka viljað hafa Samma með okkur í þessu fríi okkar þar sem Eva Natalía er í fríi, en vonandi kemst hann einhverja daga með okkur.

Fórum í Nauthólsvíkina í dag með Áslaugu og co, æði að vera þar þegar það er heitt eins og í dag. Krakkarnir skemmtu sér konunglega að leika sér að grafa og fara smá í sjóinn.

Eva Natalía fer á nýja deild þegar hún byrjar aftur í leikskólanum, hana hlakkar svo til. Spyr oft að því hvað séu margir dagar þangað til hún byrjar.. hlakkar líka svo til að hitta vini sína í leikskólanum.

Ég er byrjuð að prjóna eins og flestir Íslendingar. Byrja á Baby born pilsi sem klárast á morgun.. langar svo að prjóna á mig peysu.. hmmm vonandi get ég það.
22. júlí 2009 klukkan 23:47
Oddný Hinriksdóttir
1 athugasemd
09júlí

Langt síðan

Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

20. júní útskrifaðist ég úr hagfræði í Háskóla Íslands. Hélt fjölskylduboð heima hjá mömmu og pabba og partý um kvöldið heima hjá mér. Þetta var alveg æðislegur dagur í alla staðiSmile
Helgina eftir fórum við í útilegu með Helgu, Unnari og Birnu Maríu á Úlfljótsvatn. Rosalega skemmtilegt tjaldsvæði og gaman hvað er hægt að gera mikið þar. Förum pottþétt þangað aftur og pottþétt með Helgu og co.
Fyrstu helgina í júlí fórum við svo á Akureyri með Áslaugu systir og fjölsk og mömmu og pabba. Fengum frábært veður. Við fórum í fyrsta skiptið í jólahúsið sem Evu Natalíu fannst mjög gaman. Skemmtileg ferð í alla staði.
Næstu helgi er svo fyrsta brúðkaup sumarsins, förum samtals í 3. Hlakka svo til að fara, enda finnst mér einstaklega skemmtilegt að fara í brúðkaupWink

Útí annað. Íbúðin okkar er að fara í leigu. Við erum flutt til mömmu og pabba. Planið var auðvitað að flytja út og ég fékk inn í skólann með því skilyrði að ég myndi skila inn einingum sem vantaði uppá enskuna eða toefl.. toefl gekk ekki nógu vel og þar sem ég útskrifaðist 2003 þá tók ég ekki nógu margar einingar í ensku.. vantaði 3 einingar uppá.. En við kannski sækjum bara aftur um á næsta ári og ég þá komin með þetta í enskunni.. erum að hugsa málið, enda höfum við nokkra mánuði til þess. En fyrst við förum ekki út þá ætla ég að byrja í heilsuhagfræðinni í HÍ í haustSmile Hlakka mikið til. Ég mun ekki taka fullt nám þar sem ég verð heima með yngri skottuna mína.

09. júlí 2009 klukkan 22:20
Oddný Hinriksdóttir
3 athugasemdir
17júní

Nýjar myndir

Setti inn fullt af nýjum myndumSmile

Fórum í fyrstu útilegu sumarsins síðustu helgi með Helgu og Unnari á Apavatn og það var svaka stuð. Vorum í eina nótt til að sjá hvernig Tanja Lind væri að fíla þetta og hún er sko að fíla þetta. Og svaf líka mjög vel um nóttina.

Útskrift næstu helgi Smile jibbíkóla. Ég byrjaði í náminu 2004. Tók mér frí skólaárið 2005-2006 þegar Eva Natalía mín fæddist og svo búin að vera alveg í skólanum síðan þá, en hægði smá á ferðinni. Ég hef sem sagt tekið mér 4 ár í námið sem er 3 ára nám og eignaðist þessar fallegu stelpur á námsárunum.. Ég er dáldið stolt af mér að hafa afrekað þetta á þessum skólaárumSmile og svo er stefnan sett á master í haust.

Tími til kominn að fara sofa, 6 mánaða skoðun hjá yngri skottunni í fyrramálið, já hún er sko orðin 6 mánaða.
17. júní 2009 klukkan 23:40
Oddný Hinriksdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan